Myndir af ýmsum viðburðum
| Prjónakaffi | Brú til Borgar | Myndlistasýning Æju 28.10 |
![]() |
Menningarkvöld á Gömlu-Borg
Í tilefni af Safnahelgi á Suðurlandi var efnt til menningarkvölds á
Gömlu-Borg í Grímsnesi föstudaginn 6. nóvember kl. 20: 30
Menningarþríeykið: Margrét, Ann-Helen og Skúli voru hvert
með sitt
innlegg.
Rammíslenskar veitingar á boðstólum: kaffi, meðlæti og barinn
opinn.
Dagskrá
Menningarklasa uppsveita Árnessýslu þjófstartað
Menning uppsveitanna skoðuð frá þremur sjónarhornum
Af vatni og fólki - mannlíf við Þingvallavatn á 20. öld
Margrét Sveinbjörnsdóttir frá Heiðarbæ segir frá undarlegu áhugamáli
sem á hug hennar allan.
Baðmenning og notkun handklæðisins
Ann-Helen Odberg, íþróttafræðingur á Laugarvatni, gluggar í gamla
kennsluhætti Íþróttaskólans – og býður upp á sýnikennslu
Steinboginn í Brúará
Skúli Sæland, sagnfræðingur í Reykholti, rifjar upp sögu steinbogans
sem Helga Jónsdóttir biskupsmaddama lét brjóta niður 1603.
Hvern þyrstir ekki í að læra að þurrka sér með handklæði?
Guðrún Gunnarsdóttir
Það var fullt hús þegar 120 manns komu á tónleika Gúðrúnar Gunnarsdóttur og hljómsveit þann 26. júlí.
Flutt voru lög eftir söngvaskáldið, ljóðskáldið og leikarann Cornelis Vreeswijk.
South River Band
Það ríkti mikil gleði þegar South River Band ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur léku fyrir gesti og voru þeir ánægðir með Gömlu Borg og hlómburð og hyggjast þeir koma aftur í sumar.
Það má segja að Syðri-Ár bandið hafi
lengi verið til í ýmsum myndum. Á Kleifum í Ólafsfirði hefur alltaf
verið mikið um söng ekki síst á Syðri-Á. Ungir sem aldnir stunduðu
samsöng og síðar samspil þegar hljóðfæri komu til sögunnar.
South River Band er skipað, Helga Þór
Ingasyni á harmoniku, Ólafi Baldvini Sigurðssyni á mandólín, Matthíasi
Stefánssyni á fiðlu og gítar, Ólafi
Þórðarsyni á hryngítar og Grétari Inga Grétarssyni á kontrabassa.
Brú til Borgar
Hátíðin Brú til Borgar var haldin 27 júní og tókst hún í alla staði mjög vel. Grímsnesið skartaði sínu fegursta í ljómandi fallegu veðri.
Grímsnesingar tóku á móti Forset Íslands og frú Dorrit
a Gömlu Borg, þar sem þau þáðu íslenska, þjóðlega rétti.
Um
kvöldið skemmti Hjördís Geirs fyrir fullu húsi.
Hér fyrir neðan er það helsta sem
verður á Gömlu Borg þessa helgi.
Brú til borgar
Hátíðin Brú til borgar var haldin hátíðleg í
fyrsta skiptið árið 2008. Hátíðin var hin glæsilegasta og var þétt
dagskrá. Fornbílar, dráttavélar og margt skemmtilegt. Stóð hátíðin yfir
tvær helgar og fór þátttaka fram úr björtustu vonum.
Tilvalið tækifæri til að hitta sveitunga og njóta
Næsta hátíð auglýst síðar.
Hér má sjá síðustu dagskrá hátíðarinnar.




