Í boði

Gamla Borg hentar prýðilega fyrir hverskonar samkomur, veislur og fundi. Salurinn tekur 65 manns í sæti. Svið, bar og koníaksstofa stendur einnig til boða.
Salurinn á Gömlu Borg á ekki marga sinn líka. Sál fortíðar umlykur alla sem þangað koma og gerir andrúmsloftið hlýlegt og vinalegt.

Mjög gott er fyrir félagasamtök og vinahópa að gera sér ferð að Gömlu Borg. Setjast niður, þiggja veitingar og ræða málin.

Upprennandi listamenn fá tækifæri á að koma list sinni á framfæri.

Veitingarnar sem eru í boði á Gömlu Borg eru bakaðar af ást og alúð í eldhúsinu heima. Kökur, tertur og flatbrauð í anda hinnar íslenskuhúsmóður.
Stjórnmálamenn koma og kynna sín mál. Hvar er betra að gera þetta en í hjarta Grímsneshrepps.

Oftar en ekki enda kvöldin hjá okkur með tónlist og dansi.

