Fréttir
Opnunartimi Gömlu Borgar
Opid alla daga nema manudaga fra kl. 11-18.
Blústónleikar á Gömlu Borg
Næstkomandi laugardag 24. júlí kl. 22.
The dirty Deal Bluesband verður með Blústónleika á Gömlu Borg á laugardainn í samstarfi við Menningarráð Suðurlands. Sveitin er skipuð fjórum Selfyssingum, en þeir eru Guðmar Elís Pálsson, Örn Gunnþórsson, Magnús Einarsson og Sveinbjörn Oddsson. Tónleikarnir verða næstkomandi laugardag kl. 22 og kostar kr. 1000 inn á tónleikana
Verið velkomin á Gömlu Borg.
Brú til Borgar
Hin vinsæla sumarhátíð Brú til Borgar sem er hátíð Hollvina Grímsness verður helgina 10-11 júlí. Fyrrverandi landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson mun setja hátíðina hér á Gömlu Borg kl 13 þann 10 júlí. Einnig verður ljósmyndasýningin Göngur og Réttir opnuð þann sama dag.
Nánari dagskrá hátíðarinnar má sjá hér. Á heimasíðu Hollvinafélags Grímsness er að finna frekari upplýsingar.
South River Band

Prjónakaffi
Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar er hið vinsæla prjónakaffi hér á Gömlu Borg. Endilega látið sjá ykkur!